Jæja þá er veiðisumrinu sennilega bara lokið og haustið tekið við með sínum gæsum og rjúpum og öllu þvíen nú standa tölur þannig gæsir: 7
silungar: færri en tíu
Laxar : fimmtán það held ég nú maður kannski reynir að fara að veiða lax þegar veðrinu slotar og verður þá fljótlega skellt inn aflatölum.þetta sumar er búið að vera afspyrnu lélegt hvað veiði varðar og má þar hæst geta að bergáin hefur ekki gefið einn einasta fisk. helvítis vatnsleysið er ömurlegt.en nú í október veiddi ég þessa fimmtán laxa á sex dögum og tel það ágætis afrek, þess má einnig geta að átta þessara laxa fékk ég einn og sama daginn!!svo fer rjúpan að detta inn en ég efast nú að það komi nokkuð af henni hérna inn þar sem nú er aðeins leyfilegt að veiða sjö rjúpur á mannheld ég hafi það ekki lengra í bili Raggi Out!!
» 0 hafa sagt sína skoðun
ég veit að síðan hefur verið frekar dauð undanfarið en maður hefur einfaldlega engan tíma til að gera neitt hérna inná búinn að fara ótal sinnum að veiða búinn að leggja minnkagildru, láta stela frá mér gildrunni og fá hana aftur og næstum leggja hana aftur. Og svo er maður bara farinn að bíða neftir að gæsatímabilið byrji en það byrjar núna tuttugasta ágúst og núna tíunda ágúst hætti ég í vinnunni (AT LAST!!!) og fimmta ágúst á ég afmæli og verð sextán jei þann tólfta fer ég suður og ætla að eiga smá frí fyrir skólann. en ætli ég segi þessu ekki bara slúttuðu og segi bara....
...Raggi Out..(svona næsta einn og hálfan mánuðinn)
Jæja Í Fyrradag fór ég aftur að veiða inná f´ljótavegi byrjaði í fyrsta ræsinu hoffels megin við veginn. ég byrjaði að kasta á meðan mamma og pabbi keyrðu innað fljótabrú að snúa við. Í Sjötta kasti tekur Fiskur ca 3 pund og sá tók nú á ég var búinn að berjast við hann í smá tíma þegar spúnninn losnaði jæja ég byrja að kasta aftur og í öðru kasti tekur annar fiskur svipað stór og er hann búinn að vara á í ca mínútu þegar losnar úr honum en þá eru mamma og pabbi komin. og pabbi segir mér að kasta aftur svo ég geri það sé ég þegar rís aftan við spúninn alda og þá hægi ég á honum og kippi svo í og þá er ég kominn með hann ca 2 punda fiskur sem kokgleypir meppsinn ég landa honum og þá fara mamma og pabbi ég held áfram að kasta og fæ 4 tökur í viðbót en alltaf losnar því spúnninn var orðinn gamall og bitlaus svo hann fór í ruslið
staðan eftir daginn: Fiskar 6 ÉG 1
Hunter out
J
Np; Forever today-Dj Tiësto
Jæja þá er síðan komin úr fríi Þar sem ég fór að veiða í dag og fékk fisk!!!!!Þar að auki er síðasti dagur páskafrísins í dag þannig að þetta á allt við
En að minnsta kosti fór inn í Akurnes og náði í stöngina mína og brunaði svo inná fljótaveg að prufa, vissi að þarna var fiskur því ég hafði séð fisk þarna fyrir helgi. Að vísu var helvítis rok þarna innfrá og ég varð ekki var Hoffels megin við þjóðveginn (var by the way í fyrsta ræsinu)færði mig svo yfir veginn og í þriðja kasti tók hann eða réttara sagt hún c.a 2 punda hrygna hefði örugglega verið þyngri ef þetta hefði verið göngufiskur . Baráttan tók um 2 mínútur þar sem mér leist ekkert á sveigjuna á stönginni hún tók nú ansi vel á þó hún væri mjó eftir vetursetuna í vatninu enda fann ég að það eftir að ég tók utan um hana til að losa úr henni hversu mikill vöðvi var í henni. Hún fékk líf enda tilgangslaust að hirða hana þar sem hún var svo legin og mikill matur í kistunni en þetta var mikil ferð þar sem þetta var fyrsti fiskurinn sem ég hef veitt á árinu og fyrsti fiskurinn sem ég fékk á þessa stöng!!Veiðarfæri : 240 cm/8 ft Dam Emotion kaststöng Red Wolf kasthjól með 16lbs Jensen girni Og Mepps #3 með rauðum doppum á plötunni með 2 krókum (eiga að vera 3)
Hunter out ;P
Jæja í dag ákvað ég að stofna nýja síðu og ætla að reyna að blogga eitthvað hérna
En dagurinn vara vægast sagt geðveikur vaknaði um hálf tólf og fékk mér að éta og svona. Svo hringdi pabbi klukkan tólf og sagðist ætla að læðast að nokkrum grágæsum og hvort ég vildi ekki koma með. Auðvitað þáði ég það með þökkum og við löggðum af stað fyrst þurftum við að tékka á því hvort þær væru ekki örugglega í kartöflu garðinum. þær voru 6 þar. Svo þurftum við að fara til afa og spyrja hann hvort við mættum ekki örugglega fækka þeim og það máttum við. svo lá leiðin upp í minnkabúið hans afa að ná í vöðlurnar okkar. þegar það var búið lögðum við af stað að einum endanum á skurðinum, þá var hringt í pabba og hann beðinn um að fara út í bát því hann væri farinn að halla ískyggilega . Þá spurði pabbi mig hvort ég vil di ekki bara fara einn auðvitað vildi ég það og þá þurfti ég að læra nokkur atriði eins og að vera ekkert að kíkja uppúr skurðinum fyrr en ég væri tilbúinn að skjóta og passa að sjást ekki og fleira. Og þá var lagt af stað fyrst labbaði ég uppi á skurðbakkanum en þegar ég var kominn í vissa fjarlægð fór ég ofan í skurðinn. Þar steig ég á einhverja andskotans þúfu og steyptist ofan í vatnið "face first" og lenti þar að auki of an á einhverri andskotans bárujárnsplötu en maður harkaði þetta nú af sér (maður er nú soddan massi) . Læddist svo að gæsunum, það gekk nú snurðulaust fyrir sig og þá byrjaði ballið ég sá eina og var kominn með mið þá stóð gikkurinn á sér þá neyddist ég til að pumpa aftur þá sá gæsin mig og ætlaði að fljúga upp en samt náði ég að skjóta hana þá flugu upp 12 í viðbót og ég fretaði restinni úr byssunn en engin önnur féll þá var gæsin sótt og snúin og þurfti ég að labba með hana til afa. Þegar svo pabbi kom að sækja mig vara hann guðs lifandi feginn yfir því að ég hefði ekki skotið fleiri því hún var grindhoruð og þar af leiðandi óæt
En gaman var þetta engu að síður
Raggi out !!